Já nú vill Framsóknarflokkurinn lækka allar skuldir einstaklinga og fyrirtækja um 20%. Finnst mér í sjálfu sér tillagan nokkuð góð nema eins og venjulega þá skekkir þetta myndina af fólkinu í neyðinni. Stjórnmálamenn segir að þetta kosti 400-500 milljarða. Það er svakalegir miklir peningar. Held að það væri gáfulegra að lækka skuldir allra húsnæðislána um 20-30% og gera þak á niðurfellingu. Allir einstaklingar sem skulda meira en 100 milljónir ættu að fá niðurfellingu upp að þeirri upphæð. Þeir einstaklingar sem skulda meira en 100 milljónir hafa kanski keypt sér sannarlega alltof stórar og flottar fasteignir.
Með fyrirtækin, þar á að setja eitthvert þak líka, veit að það eru fyrirtæki hér sem voru keypt fyrir milljarða lánsfé og eigendur slíkra fyrirtækja búnir að moka út arðgreiðslum í sig. Spáðu í að lækka skuldir fyrirtækis sem skuldar 5 milljarða, það eru 1000 milljónir í afskrift. Spurning hvort ekki væri skynsamara að bíða með niðurfellingu lána á fyrirtæki en bankarnir gætu eignast eignarhlut í þeim ? Í þeim fyrirtækjum sem slíkt yrði gert gætu fyrirtækin keypt aftur hlutaféið af bönkunum þegar betur árar ?
Allt eru þetta vangaveltur en ég held að aðalvandamálið er það að fólkið í pólitíkinni þori ekki að taka svona ákvarðanir......Mér hefur sýnst að allir stjórmálamenn á íslandi hugsi fyrst og fremst um að verða kosnir aftur og taki því aldrei skörungslegar og góðar ákvarðanir

Þó svo slíkar ákvarðanir geti gert þá vinsæla þá geta þær líka virkað í hina áttina og því þora þeir ekki að taka slíkar ákvarðanir.
Svo ákvað ég að gera nýja möppu fyrir bókhaldið mitt og er óhætt að segja að maður verið hálf-svekktur

Þarf því miður næstu fjögur árin í viðbót að hafa dálk sem segir lán tekinn til að borga fyrir Guðmund Örn Sigurðarson sem er systursonur minn sem ég gekk í ábyrgð fyrir þegar hann opnaði pizza-stað. Sýnist mér á öllu ef þessi maður hefði áhuga þá gæti hann borgað þetta sjálfur en því miður virðist hann að upplagi eins og mamma sín er, eigingjarn, ekki snefill að sómatilfinningu eða heiðarleiki yfir höfuð. Mér skilst að hann sé að fara gifta sig í USA en þangað flúði hann eftir að vera búinn að koma mörgum á kaldan klaka. Kanski sér drengurinn sóma sinn í því að endurgreiða fólki peninga þegar hann selur sinn helming í einbýlishúsi sem hann fékk í arf. En ef maður þekkir hann rétt þá notar hann þá aura " einungis " í að hafa það betra sjálfur þó svo fullorðið fólk og jafnvel börn þjáist hér á Íslandi vegna framkomu hans á liðnum árum. Vona bara að tilvonandi eiginkona hans vita að hverju hún er að ganga

Annars finnst mér mjög fyndið að þessi "ágæti" drengur skrifaði sjálfshjálparbók og gaf hana út. Verð að segja, á maður ekki að stunda það sem maður predikar ? Á maður ekki að leysa vandamál sín ? Á maður ekki að umgangast fólk eins og maður vill láta aðra umgangast sig ? Ég skil ekki hvernig menn geta skrifað svona bækur um mannfólkið og hvernig það á að vera og drulla svo yfir allt og alla. Jæja nóg um það.........
Ég ætla samt ekki að láta eitt eða tvö skítug epli eyðileggja annars mitt jákvæða hugafar

og taka lífinu létt meðan hausinn snýr rétt eins og pabbi segir